Heynesbók


Stækkaðu myndina
Stækkaðu myndina enn meira
Maður teymir nautgrip, e.t.v til slátrunar.


Á spássíum íslenskra handrita má víða finna alls kyns myndefni, allt frá viðvaningslegu kroti og eftiröpun, til mynda sem greinilega eru gerðar af hæfileikaríkum teiknurum. Fáar bækur eru jafn mikið skreyttar fjölbreyttum og litskrúðugum mannlífsteikningum og lítið Jónsbókarhandrit frá því undir lok 15. aldar sem kennt er við bæinn Heynes. Nánast hver síða Heynesbókar AM 147 4to er nýtt til hins ýtrasta þar sem spássíumyndir prýða þann hluta síðunnar sem ekki inniheldur texta.

Á spássíum eru myndir sem sýna gamla þjóðlífshætti og líf alþýðunnar, s.s. slátrun baulu, öldrykkju fólks, skipaferðir, hesta- og hundaat, heyannir og margt fleira. Myndir eins og þessar hafa heimildagildi því þær geta sagt okkur menningarsögu, af þeim má til dæmis álykta um klæðaburð fólks og lifnaðarhætti. Auk mannlífsmynda skjóta upp kollinum ýmsar kynjaskepnur hér og hvar. Á þessari síðu eru örfá dæmi um þær fjölmörgu skemmtilegu spássíumyndir sem finna má í Heynesbók.


Smelltu á myndina til þess að sjá hana í fullri stærð Smelltu á myndina til þess að sjá hana í fullri stærð
Stækkaðu myndina Stækkaðu myndina enn meira
Stækkaðu myndina Stækkaðu myndina enn meira
Á myndinni er nýbúið að slátra baulu, undir henni stendur skrifað: dauð er baula. Mælingar og mælitæki. Við fyrstu myndina stendur: rett er stikan, við þá næstu: rangur pundari og þá þriðju: þetta er skjóla.
Smelltu á myndina til þess að sjá hana í fullri stærð
Stækkaðu myndina Stækkaðu myndina enn meira
Stækkaðu myndina Stækkaðu myndina enn meira
Kona liggur út af með lokuð augu og önnur kemur færandi hendi með ölkönnu. Undir liggjandi konunni er skrifað: ek get nu eigi drukkit lengra. Maður liggur út af í fleti og skýlir augum sínum með annarri hendi. Annar situr með lokuð augun, þreytulegur að sjá. Undir liggjandi manninum er skrifað: Hér ligg ek drukkinn og hinum sitjandi: Hér sit ek sofandi og fordrukkinn.
Stækkaðu myndina Stækkaðu myndina enn meira
Stækkaðu myndina Stækkaðu myndina enn meira
Menn við fisk- og fuglaveiðar og eggjatínslu. Einn hefur fangað vænan fugl, annar hefur lent í klónum á fugli sem reynir að verja eggin sín og sá þriðji hefur komist yfir fisk.

Maður rær frá bæ sínum á árabát. Á bakkanum hinum megin bíður hans maður með sauð. Í ramma fyrir framan sauðinn stendur skrifað: viltu flytja sauð.

 


© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima