Valþjófsstaðahurð

Valþjófsstaðarhurð í Þjóminjasafni Íslands nr. 11009, ljósmyndari Ívar Brynjólfsson. Kirkjuhurðin frá Valþjófsstað er útskorin með
myndum af riddara og ljóni í efri hringnum. Hurðin sem er líklega frá um 1200 er nú um 200 sm. á hæð en hefur verið þriðjungi stærri
á miðöldum. Útskurðurinn er gott dæmi um stílhreinan rómanskan stíl. Í efri hringnum má lesa söguna af riddaranum og ljóninu í þremur
myndum. Í neðri hluta hringjarins er fyrsta sagan þar sem riddarinn bjargar ljóni, sem lent hefur í klónum á grimmum flugdreka, frá bráðum
bana með því að renna sverði sínum í gegnum hann. Vinstra megin á efri helmingnum má sjá hvar ljónið fylgir þakklátt riddara sínum
alveg til dauðadags og hægra megin sést það liggja á gröf lífgjafa síns og bíða dauðans. Undir ljóninu á kistuhliðinni stendur grafletur
riddarans með rúnaletri: Sé inn ríkja konung hér grafinn, er vá dreka þenna. Í neðri hringnum eru fjórir drekar sem liggja í hring og bíta í sporð sér.