Upphaf ritunar

Hið ritaða orð
Um aldir varðveitti fólk allra handa fróðleik um samfélag sitt og sögu í minni sér og miðlaði með frásögn til annarra. Lög og siðareglur samfélagsins, ættfræði og ýmiss annar fróðleikur, þ.m.t. kveðskapur og sagnir var varðveitt í munnlegri geymd en þegar kristin bókmenning hélt innreið sína fóru Íslendingar fyrst að skrifa niður texta á bókfell með bókstöfum.

Með kristnitökunni, sem alla jafna er tímasett árið 1000, urðu að sönnu aldahvörf í menningar- og menntalífi Íslendinga. Sú guðs kristni sem þingheimur á Alþingi ákvað þá að lúta, var umfram allt útbreidd og boðuð fyrir tilverknað orðsins, – enda var orðið, samkvæmt biblíunni, upphaflega hjá guði. Dauðlegir menn höfðu þó náð tökum á að festa orð, og þar með hugsun sína, s.s. vísindi, listir og allra handa fróðleik, á haldbetra efni en svo að það hyrfi um leið og hljómur raddar þagnaði eða minni brysti. Þá tækni hafði kristin kirkja tekið í sína þjónustu æði snemma og átti bóklistin ekki síst þátt í útbreiðslu trúarinnar, löngu áður en hin fyrsta íslenska kirkja var reist.

Kristin trú má teljast „bókstafstrú“ í þeirri merkingu að hún byggir á og styðst við hið ritaða orð, bæði við boðun og þjónustu guðdómsins. Af þeim sökum er nokkuð víst að fljótlega eftir trúarumskiptin námu Íslendingar þá list að lesa og rita bækur, – á latínu um leið og þeir kynntust kristnum menningarheimi, en jafnframt á eigin tungu þar sem trúboð hlýtur að hafa farið fram á því máli sem almenningur skildi og gat tileinkað sér. Með innlendu trúboði og messuhaldi hófst því fyrsta glíma Íslendinga við að aðlaga erlendan hugtakaforða að móðurmáli sínu.

Frumraunir hinna fyrstu íslensku skrifara hafa ekki varðveist fram á okkar daga þar sem elstu heimildir um innlenda bókiðju eru handritabrot sem talin eru frá því um miðja 12. öld, u.þ.b. 150 árum eftir kristnitökuna. Allmörg þessara brota innihalda trúarlega texta og af þeim að dæma hefur glíman gengið allvel fyrir sig, en um leið markaði hún e.t.v. upphafið að áframhaldandi aðlögun og þróun íslenska orðaforðans og ritmálsins í takt við síbreytilegar aðstæður, aðlögun sem stendur fram á okkar daga.


Heimild:
Margir hafa rætt upphaf ritunar á Íslandi og mótun ritmáls og orðaforða í árdaga kristinnar trúar sjá t.d. Hreinn Benediktsson. 1965: 13-18, Jakob Benediktsson. 1965: 95-96, Ólafur Halldórsson. 1990: 361-362, Stefán Karlsson. 1989/2000: 40-41 og 1985/2000: 413, Kristján Árnason. 2001, 2002a og b, 2004.


© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima