![]() |
![]() |
Viltu vita meira um margræðni rúnanna?
Þegar Fyrsti málfræðingurinn setti Íslendingum stafróf um miðja 12. öld útbjó hann átta nýja stafi fyrir þau málhljóð sem ekki var hægt að tákna með latínustöfum. Rökin fyrir sérstöku stöfunum sækir hann til vandkvæða við rúnaráðningar, sem verði erfiðar eða ónákvæmar vegna þess hve margræð hver rún er. Orð hans gefa til kynna að rúnaskrift hafi þekkst um miðbik 12. aldar en ekki hafi alltaf þótt ljóst hvernig lesa skyldi, þar sem hver rún gat táknað mörg hljóð. Þann vanda hafa lesendur rúna og rúnafræðingar sennilega löngum glímt við. Fyrsti málfræðingurinn nefnir sérstaklega hversu bagaleg margræðnin sé þegar skýr skilningur eða ótvíræð merking textans skiptir máli, t.d. við túlkun lagaákvæða.
Viltu vita meira um rúnasteina og myndsteina?
Rúnaristur voru stuttorðar og oft notaðar til að merkja hluti, í stutt skilaboð, allt frá vörulistum til ástarjátninga, eða til grafskriftar. Langir textar á borð við lög eða sögur hafa varla verið skráðir með rúnaletri. Bæði hefði það verið afar seinlegt og efnið óþjált, en auk þess allsendis óþarft að eiga sögu varðveitta á 15 steinum, eða langt kvæði á rúnakeflum, þegar lifandi munnleg frásögn eða flutningur stóð til boða. Hins vegar hafa fundist nokkrir myndsteinar, engir þó á Íslandi, með skreytingum sem sýna sagnaefni úr munnlegri geymd og gætu hafa þjónað svipuðum tilgangi og kirkjulist síðar, þ.e. að minna fólk á efni goðsögunnar eða ritningarinnar.
Árið 1918 fannst merkilegur myndsteinn í Upplandi í Svíþjóð sem sýnir að líkindum veiðiferð Þórs og Hymis jötuns sem greint er frá í Snorra-Eddu. Á myndinni virðist Þór einn á ferð en steinninn, sem talin er frá 11. öld, má þó teljast vitnisburður um að goðsagnaefnið sem Snorri Sturluson tók saman í Eddu sína um 1220 hafi lifað í fornum norrænum munnmælum frá því fyrir kristnitökuna. Einnig hafa fundist myndir sem tengjast sömu goðsögn á steinum frá Gotlandi, Jótlandi og Englandi.
Viltu vita meira um rúnir?
Samnordisk runtextdatabas: Norrænar rúnir í gagnagrunni við Uppsala-háskóla.
Danske Runeindskrifter: Samvinnuverkefni Nordisk Forskningsinstitut, Københavns Universitet og Nationalmuseet i København. Þar er öllum þekktum dönskum rúnaáletrunum, frá járnöld til miðalda, safnað saman en þær eru alls um 900 talsins.
Viltu vita meira um rúnakvæði?
Rúnakvæði
Þrjú rúnakvæði með nöfnum rúnatáknanna hafa varðveist frá miðöldum. Elsta kvæðið er engilsaxneskt og nær yfir 26 rúnir eldra rúnastafrófsins. Það er talið frá 10. öld, gæti þó verið eldra (ort á 8. eða 9. öld), en var varðveitt í handriti frá 10. öld sem brann 1731. Kvæðið var góðu heilli gefið út á prenti áður, í riti George Hickes, Linguarum Veterum Septentrionalium Thesaurus frá árinu 1705.Norsku og íslensku rúnakvæðin ná yfir 16 rúnir yngra rúnastafrófsins. Norska kvæðið, sem gæti verið frá 12. öld, er ort undir fornyrðislagi og var skrifað upp eftir handriti sem brann í Háskólasafninu í Kaupmannahöfn 1728. Danski fornfræðingurinn Ole Worm (Olaus Wormius á latínu) gaf það þó áður út á prenti í Danica Literatura Antiquissima 1636.
Norska rúnakvæðið
Runedigt Norsk; 13. årh. útg. Finnur Jónsson í Den norsk-islandske SkjaldedigtningFé veldur frænda rógi:
fæðist úlfur í skógi.Úr er af illu járni;
oft (h)leypur hreinn á hjarni.Þurs veldur kvenna kvillu;
kátur verður fár af illu.Óss er flestra ferða
för; en skalpur er sverða.Reið kveða (h)rossum ve(r)sta;
Reginn sló sverðið besta.Kaun er barna bölvan;
böl gerir ná fölvan.Hagall er kaldastur korna;
Kristur skóp heiminn forna.Nauð gerir (k)nappa kosti;
naktan kelur í frosti.Ís köllum brú breiða:
blindan þarf að leiða.Ár er gumna góði;
get eg að örr var Fróði.Sól er landa ljómi;
lúti eg helgum dómi.Týr er ein(h)endur ása;
oft verður smiður að blása.Bjarkan er laufgrænstur lima;
Loki bar flærða tíma.Maður er moldar auki;
mikil er greip á hauki.Lögur er, er fellur úr fjalli,
foss; en gull eru (h)nossir.Ýr er veturgrænstur viða;
vant er, er brennur, að svíða.Íslenska rúnakvæðið
Matthías Viðar Sæmundsson gaf kvæðið út eftir AM 687 d 4to (um 1490-1510) í Galdrar á Íslandi frá 1992.Íslenska rúnakvæðið er yngst rúnakvæðanna og sennilega samið með hliðsjón af þeim eldri. Það er varðveitt í þremur handritum sem öll eru í handritasafni Árna Magnússonar, það yngsta er í Kaupmannahöfn en hin tvö í Reykjavík. Í elsta handritinu, AM 687 d 4to frá því um það bil 1500, eru rúnirnar letraðar í upphafi hverrar vísu en ekki nöfn þeirra. Í AM 461 12mo, frá því um miðbik 16. aldar eru nöfn rúnanna hins vegar rituð en ekki þær sjálfar. Yngsta handritið er AM 413 fol., afrit af handriti frá 16. öld sem í var Runologia Jóns Ólafssonar frá Grunnavík (1732-52).
Íslenska rúnakvæðið er samið undir ljóðahætti og oft nefnt Þrídeilur þar sem þrjú vísuorð eru um nöfn eða merkingu hverrar rúnar. Latínuorð, sem oftast samsvara nafni rúnarinnar eru skrifaðar á spássíur, ásamt heitum yfir höfðingja eða konunga, hvert heiti hefst á sama staf og nafn rúnarinnar hverju sinni.
Fé er frænda róg
og flæðar viti
og grafseiðs gata.
aurum fylkir. (aurum = fé, gull, e. gold)Úr er skýja grátur
og skara þverrir
og hirðis hatur.
umbri vísi. (umbri/umbra, umbrae = shade; ghost; shadow; u og v voru oft táknuð eins í skrift)Þurs er kvenna kvöl
og kletta búi
og varðrúnar ver.
Saturnus þengill. (Saturnus = )Óss er aldingautur,
og Asgarðs jöfur
og Valhallar vísi.
Júpíter oddviti. (lat. Roman chief/sky god); (supreme being); heavens/sky (poetic)Reið er sitjandi sæla
og snúðug ferð
og jórs erfiði.
iter ræsir. (iter = journey; road; passage, path; march)Kaun er barna böl
og bardaga för
og holdfúa hús.
flagella konungur. (flagella = whip, lash, scourge; thong (javelin); vine shoot; arm/tentacle (of polyp)Hagall er kaldakorn
og krapa drífa
og snáka sótt.
grando hildingur. (grando = hagl, e. hail, hail-storm)Nauð er þýjar þrá
og þungur kostur
og vássamleg verk.
opera niflungur. (lat. opera = nauð, e. work, pains, labor)Ís er árbörkur
og unnar þak
og feigra manna fár.
glacies jöfur. (glacies = ís, e. ice; ice fields, i var ritháttur þar sem nú er skrifað j)Ár er gumna góði
og gott sumar
og algróinn akur.
annus allvaldur. (annus = ár, e. year, age, time of life; year's produce; circuit, courseSól er skýja skjöldur
og skínandi röðull
og ísa aldurtregi.
rota siklingur. (rota = hjól, e. wheelTýr er einhendur áss
og úlfs leifar
og hófa hilmir.
Mars tiggi. (Mars = Roman god of war; warlike spirit, fighting, battle, army, force of armsBjarkan er laufgað lim
og lítið tré
og ungsamlegur viður.
abies buðlungur. (abies = fura, tré e. fir tree/wood; white/silver fir, spruce; thing of fir, ship, spear; sea weedMaður er manns gaman
og moldar auki
og skipa skreytir.
homo mildingur. (homo = maður, e. man, human being, person, fellowLögur er vellanda vatn
og víður ketill
og glömmunga grund.
lacus lofðungur. (lacus = lögur, e. basin/tank/tub; lake/pond; reservoir/cistern/basin, trough; lime-hole; bin; pitÝr er bendur bogi
og óbrotgjarnt járn
og fífu fárbauti.
arcus ynglingur (arcus = bogi, e. bow, arc, coil, arch; rainbow; anything arched or curved